|
|
08.05.2007 23:37:40 / bippo
Jæja gott fólk
Ég hef ákveðið að hætta með þessa síðu og í staðinn þá
erum ég og Stebba komin með sameiginlega síðu þar sem við munum
dúndra inn myndunum okkar og svo kem ég kannski með einstaka blogg
þar sem Stebba er ekki líkleg til stórræða í þeim bransanum En
allavega, þá er linkurinn á nýju síðuna:
www.123.is/birkirogstebba
Takk fyrir að hafa lesið síðuna í öll þessi ár og endilega kíkið
á nýju síðuna 
Birkir
»
26.03.2007 00:15:15 / bippo
Já sælir gömlu rebbar
Þá er maður kominn heim frá höfuðstað norðursins, staðnum
sem eitt sinn var kallaður Bangkok norðursins, heimabæ Brynjuíssins
og íslandsmeistaranna í hokkí (ef ég man rétt) og besta skíðsvæðis
landsins, Akureyri. Þar dvöldum við 1.árið á Laugarvatni í heila 5
daga að læra sjálf og læra að kenna hinar ýmsu vetraríþróttir. Við
gistum öll saman á Gistiheimili Akureyrar og þar gerðust vafasamir
hlutir sem ekki fara út fyrir bekkinn Eins og vill reyndar oft
gerast þegar nemar á Laugarvatni eru annars vegar En dagskráin
var þannig að alla morgna vorum við í skautahöllinni, hinum
gríðarsterka heimavelli SA, þar sem við sýndum listatakta í hokkí
og hinni stórkostlegu íþrótt Curling eða eins og Mörður Árnason kýs
að kalla hana, Krullu. Fyrir þá sem ekki vita hvað Krulla er þá er
það þessi með steinunum sem er rennt eftir ísnum og svo eru nokkrir
sem sópa fyrir framan steinana. Þetta er eiginlega bara
boccia á ís með kústum. S'iðan kynntist ég hokkí alveg uppá nýtt.
Djöfulins snilldar íþrótt. Það eru fáar íþróttir sem ég hef
prófað, og ég hef prófað þær allflestar, sem eru eins líkamlega
erfiðar og hokkí. Og ekkert eðlilega skemmtileg í þokkabót. Eftir
þessa 5 daga skautaþjálfun er ég að sjálfsögðu kallaður konungur
íssins, Birkir Gretzky og margt fleira í þeim dúr En nóg um það.
Eftir stuttan hádegismat var síðan skundað uppí í fjall Hlíðar og
rennt sér á bretti eða skíðum fram til lokunar. Tær snilld.
En núna er hversdagsleikinn tekinn við á ný og maður mætir bara
niður í íþróttahús á hverjum degi í verklegt. Meðal verkefna næstu
vikna er t.d. að búa til dansatriði til að sýna fyrir 2. og 3.
árið. Já þið lásuð rétt... við á 1.ári eigum að hafa
danssýningu. Svo verður allt saman tekið upp og allir hlægja
sig máttlausa að okkur stirða fótboltafólkinu sem kann ekkert að
dansa Síðan erum við að fara í samkvæmisdansa ásamt þessum
venjulegu boltaíþróttum og sundi. Jááááá svona er lífið á
Vatninu. En nú er þetta oirðið gott. Ég læt mynd fylgja í
tilefni dagsins. Tjátjá

Alveg snar þessi
»
08.03.2007 21:58:02 / bippo
Sælaaaaaaaaaaaaar
Hvað er málið með þessa feminista kellingu sem skrifaði á
bloggið sitt útaf Smáralindarbæklingnum. Hún er nú ekki alveg með
öllum mjalla. Það er bara einfaldlega ekki allt í lagi ef þú sérð
eitthvað kynferðislegt útúr mynd af fermingarstelpu að beygja sig
niður með opinn munninn. Hún sagði á blogginu sínu að hún væri að
biðja um, ég biðst afsökunar á orðalaginu, "að fá það aftanfrá" og
"að hún væri að biðja um að fá t**** í munninn". Hún sagði líka að
á forsíðu þessa umrædda bæklings mætti sjá þessa ungu stúlku í
velþekktri stellingu úr klámmyndum. Ég sé bara ekki betur en að
stúlkugreyið sé einfaldlega að beygja sig eftir bangsa og ég verð
bara að segja eins og markaðsstjóri Smáralindar að ef einhver les
einhvern sora útúr þessari mynd þá er hann einfaldlega bara með
einhverjar sjúkar hugsanir. Annað sem hún sagði sló mig nú soldið
en það var að í túlkun sinni á táknfræðinni sem hún sér búa að bak
við myndinni sé blandað saman sakleysi barnæskunnar við tákn úr
klámi og að útkoman verði því hin saklausa hóra, hin hreina mey sem
í einni svipan verður klámmyndadrottning... Er ekki allt í lagi
kelling??!! Hvað er að þessum öfga feminista kellingum þessa
dagana. Það má ekkert gera án þess að þær sjái eitthvað klámfengið
úr því. Það mætti halda að þær fengju borgað fyrir að kvarta svo
mikið eru þær vælandi í fjölmiðlum þessa dagana. Svo er ein önnur
vælandi feministi sem sniðgegnur allar vörur sem eru auglýstar með
fáklæddum konum eða eitthvað slíkt. Hún kom í viðtal einhversstaðar
og var eitthvað að tala um að hún væri að sniðganga einhverjar
vörur og fyrirtæki en þau eru svo mörg að hún man ekki einu sinni
af hverju hún er að sniðganga sum fyrirtæki. Í alvöru, eignist líf
og hættið þessu væli. Ég held nú samt að þetta sé bara lítill hluti
feminista sem eru með tárin í augunum alla daga og restin sé bara
ágætis fólk enda er ég að sjálfsögðu hlynntur jafnrétti sem ég hélt
að væri aðalbaráttuefni feminista en ekki það að gráta í hvert
skipti sem kona fer í bikini eða beygir sig niður. Ég segi bara
plís, einhver rétti þeim tissjú! Langaði bara að koma þessu frá mér
því égvar svo yfir mig hneykslaður á þessari Guðbjörgu Kolbeins
þegar ég las fréttablaðið í morgun. En nú er þettaorðið gott. Og
farið nú að kommenta pappakassarnir ykkar. Það getur ekki verið að
þessir 3 sem kommenta eitthvað hérna skoði síðuna mína samtals 130
sinnum á dag. Það hljóta einvherjir fleiri að kikja hingað. Koma
svo... Kommenta. Leiter
Birkir
»
05.03.2007 22:58:49 / bippo
Já góða kvöldið lömbin mín
Jæja, þá er vettvangsnáminu lokið og ég verð bara að segja að
þetta var frábær reynsla og mjög skemmtileg þar að auki. Krakkarnir
í Fellaskóla eru hin skemmtilegustu þó svo að inn á milli séu
vissulega kolsvartir, algjörir sauðir sem að skemma fyrir
fjöldanum. Það er þessum sauðum að kenna að orðsporið af þessum
skóla er eins og það er. En ég gat ekki séð betur en að stór
meirihluti krakkanna séu vænstu skinn. Svo er hann Freysi minn gott
dæmi um vel heppnaðan Fellaskæling, enda fékk hann ómælda virðingu
krakkanna strax frá upphafi. Hann er náttla ekki nema þriðji
einstaklingurinn úr Fellunum til að fara í háskóla En þetta hef
ég að segja við krakkana í Fellaskóla... virðing!
Eitt sá ég á mbl.is sem gerði mig hreinlega reiðan og reyndar
líka mjög hissa því að ég vissi ekki að svona litlar sálir væru
til. Einhver andskotans fáviti keyrði á 8 ára strák á Akranesi og
keyrði í burt af vettvangi. Við það að lesa svona spyr maður sig,
hvað er að fólki!? Allt eðlilegt fólk hefði náttla stoppað bílinn
og farið út að hjálpa greyið drengnum og tekið mistökum sínum eins
og maður. Það ætlar sér auðvitað enginn að keyra á 8 ára dreng og
þess vegna efast ég um að það hefði verið gert eitthvað mikið mál
úr þessu atviki ef hann hefði bara stoppað og hjálpað stráknum. En
þessi maður, sem er greinilega afskaplega lítil sál og algjör
ræfill, næst vonandi og látinn borga greyið stráknum skaðabætur og
vonandi verður skirteinið tekið af honum líka. En nóg um það...
Í næstu viku er sennilega skemmtilegasta vika skólans hingað til
því að við á fyrsta ári erum að fara til Akureyrar í 5 daga til að
læra vetraríþróttir. Í rauninni flyst skólinn bara til Akureyrar,
nánar tiltekið uppí Hlíðarfjall og á skautasvellið, en þar sem það
verður alltaf bara kennt til hádegis og við höfum svo það sem eftir
er dags til að renna okkur á skíðum eða bretti fríkeypis í
Hlíðarfjalli. Skólinn borgar að sjálfsögðu lyftukortið alla vikuna
Þannig að ef þið verðið á Eyri akurs í næstu viku þá endilega
bjallið á kjeppann. En þetta er bara orðið djöfulli gott í bili.
Leiter hómzzzzzz
Birkir
»
26.02.2007 20:39:14 / bippo
Jááááá sælaaaaaaaaaaaaar
Jæja... vegna fjölda áskoranna og hótunnar frá Mæju pæju um að
hætta að skoða bloggið þá varð ég bara að koma aftur úr bloggfríinu
mínu. Það er ansi margt búið aðgerast á þessum mánuði en þó nenni
ég nú ekki að skrifa um það allt. En ég kem nú með það helsta fyrir
ykkur lömbin mín 
Í dag byrjaði ég í æfingakennslu í hinum alræmda Fellaskóla í
svartasta gettói Reykjavíkurborgar, Fellahverfi í Breiðholti. Ég og
Freysi verðum þar þessa viku að fylgjast með og fáum líka að kenna
alveg helling. Við mættum þarna um 9 leytið í morgun og var sagt að
okkur væri velkomið að kenna strax klukkan 11.20 og líka tímann á
eftir. Þannig að við fengum góða 2 tíma til að undirbúa tvo tíma í
einum erfiðasta skóla Evrópu og þó víðar væri leitað. Og það var
ekki allt. Bekkurinn sem við kenndum fyrst voru tveir 5.bekkir
saman sem þykja frekar sprækir. Og þessi grey voru nú ekki alslæm
en það var þó nokkuð um "töffara" og maður fékk ekkert svakalega
mikla athygli frá þeim á köflum. En það var bara gaman að því.
Næsti tími var svo 8.bekkur og gekk það eiginlega bara eins og í
sögu. Við Freysi náðum ágætlega til krakkanna, enda Freysi legend í
Fellunum og einn af fáum sem hafa farið í háskólanám úr Gettóinu
Á morgun kennum við svo heilar 6 kennslustundir og þ.á.m. 10 bekk
sem verður örugglega athyglisvert. Spurning hvort að víkingasveitin
ráðist inn í salinn og handtaki nokkra "dílera". Maður spyr sig. Ég
er náttla bara lítill og saklaus Hlíðabúi og þekki ekki þetta
umhverfi og þess vegna er gott að hafa Frey með sér í þessu sem er
þaulvanur í gettóinu. En annars þakka ég bara fyrir að vera á lífi
eftir fyrsta daginn. 1 down, 4 to go 
Í síðustu færslu talaði ég um frækilegann sigur okkar massanna á
1. ári á væsklunum á 2.ári í körfu. Greyin mönuðu sig loksins upp í
að skora aftur á okkur og aftur var það handbolti. Þeir völdu
náttla dag þar sem þeir vissu að við yrðum ekki uppá okkar besta,
eða daginn eftir kvennaferðina, sem er eitt af aðalfylleríunum á
Vatninu. Þess má geta að enginn á öðru árinu drakk þetta kvöld
heldur tóku þeir extra handboltaæfingu bæði daginn fyrir leik og
svo um morguninn fyrir leik. Við á 1.ári mættum skelþunnir í
leikinn sem var á hádegi og við allir nývaknaðir. Til að gera langa
sögu stutta þá mörðu væsklarnir á 2.ári sigur eftir framlengingu og
vítakastkeppni og hafa held ég bara aldrei verið stoltari. Ég hefði
ekki verið alveg eins stoltur af því að vinna mjög nauman sigur á
mönnum sem voru nánast ennþá fullir eftir nóttina en ef þeim líður
vel með þennan sigur þá óska ég þeim bara til hamingju og vonast
hér með eftir áskorun í fótbolta ef þeir þora. Og kannski þeir
skori á okkur þegar við erum edrú.
Svo langar mig aðeins að koma inn á þessa umræðu um
klámráðstefnuna sem átti að fara fram hérna. Hvað er að!!!!!!!????
Búum við í Sovétríkjunum á tímum kalda stríðsins. Ég bara spyr. Ég
bara skil ekki hvernig við getum leyft okkur að velja túrista og
banna þeim sem okkur þóknast ekki að koma til landsins og segja að
þeir séu ekki velkomnir. Og það voru ekki bara feministarnir (sem
mér finnast b.t.w. ekkert sérlega skemmtilegar... stanslaust
vælandi) sem vildu ekki fá þetta lið heldur kom borgarstjórinn og
sagði að þau væru ekki velkomin. Af hverju hættir hann ekki bara að
skipta sér að því sem kemur honum ekki við og fer og sinnir alvöru
störfum sem borgarstjóri á að sinna. Þetta fólk var ekkert búið að
brjóta af sér hér á landi og ég minni á það að það sem þetta fólk
gerir er löglegt í þeirra landi og viðurkennd starfsgrein. Ef við
höfum einhverjar áhyggjur af því að þau séu að fara að brjóta
einhverjar reglur þá á bara að fylgjast með þeim eins og öðru fólki
hér á landi og handtaka ef þau brjóta lög. Mér finnst ekkert
réttlæti í því að meina þeim gistingu á nákvæmlega engum forsendum.
Svo man ég ekki betur en að það hafi útlendingar komið hér til
lands á síðasta ári og tekið upp heila klámmynd... ekkert heyrðist
þá. Og hvar heldur fólk að myndirnar fyrir bleikt og blátt séu
teknar. Í Bretlandi. Neeeeeeeeeeiiiiiiiii. Af hverju velja
stjórnvöld sér bara suma aðila til að bögga en ekki alla. Annað
hvort verða þeir að gera þetta almennilega eða bara sleppa þessu og
virða rétt fólks og frelsi einstaklingsins. Er það ekki það sem við
viljum. Frelsi. En nú er þetta komið gott. Nú vil ég fá komment
börnin góð Leiter bíaddsjes
Birkir
»
24.01.2007 16:27:06 / bippo
Góóóóðan dag, góðan dag, glens og grín það er mitt fag...
o.s.frv.
Ég hugsa barasta að það sé kominn tími á smá blogg. Það sem er að
frétta af kappanum er ekki voða mikið en það er þó að frétta frá
Fredrikstad að ég og Pálmi fengum ekki samning en maður grætur það
ekkert. Ég fæ þá bara tækifæri til að vinna langþráðan
Íslandsmeistaratitil með Reykjavíkurstórveldinu og ekki nóg með það
heldur líka á nýjum og stórglæsilegum velli. Ónei það verður sko
ekki leiðinlegt í sumar hjá okkur Valsmönnum.
Í dag skoruðu gungurnar á 2. ári svo loksins á okkur aftur og í
þetta skiptið í körfubolta. Og hafi þeir haldið að þeir ættu
einhvern meiri séns núna en síðast, þegar þeir skoruðu á okkur í
handbolta, þá skjátlaðist þeim allsvakalega. Sjampódrengirnir voru
sko teknir að aftan í þurrt...  Undirritaður skoraði 4 stig, stal
2 boltum, blokkaði einn bolta langt útaf vellinum ( það var
geðveikt enda trylltist allt í húsinu) og tók ófá fráköst í 22-17
sigri. Þeir voru frekar tapsárir greyin enda vildu þeir
hefna fyrir handboltatapið en því miður erum við strákarnir á 1.
ári einfaldlega bara miklu betri en þeir  Eins og ég sagði eftir
að við unnum handboltann þá erum við fyrsti 1.bekkurinn til að
vinna áskorun gegn eldri bekk og nú höfum við gert það tvisvar.
Þvílíkur árgangur!!!!!  Nú bíðum við bara eftir
fótboltaáskoruninni því að það er jú sú grein þar sem við eigum að
vera sterkastir og þ.a.l. efast ég um að þeir þori greyin. En nóg
um það
Ég fékk loksins síðustu einkuninna mína í síðustu viku og ég er
bara nokkuð sáttur. 8 í inngangur að háskólanámi, 8 í hreyfing og
íþróttir barna I og 6 í vöxtur og þroski. Þetta gerir 7.47 í
meðaleinkunn ef ég man rétt sem er bara hærra en ég á að venjast.
Kallinn sáttur. En nú er þetta orðið gott í bili. Leiter
skeiter
Birkir
»
10.01.2007 11:38:02 / bippo
Jááááááááááá góðann daginn
Ég er bara búinn að vera í Noregi í 2 daga en samt hef ég lært
sitthvað í norskunni. Heja Norge, Jeg har det bra, Har du det bra,
Kan jeg har en påfylling. Ótrúlegt hvað maður lærir fljótt...
össsssssssssssss. Hér sit ég á hótelherbergi í Noregi og skoða
internetið af áfergju. Ég kom hingað á mánudagskvöldið til að æfa
með Fredrikstad FK og það hefur bara gengið nokkuð vel. Fórum
reyndar í óvænt píp-test í gær sem maður bjóst ekki alveg við en
það var sosum ágætt. Svo var fótboltaæfing seinni partinn í gær sem
gekk alveg ágætlega en hún byrjaði nú með því að það var tekið
viðtal fyrir staðarblaðið hérnaí Fredrikstad við okkur Pálma sem
mér fannst nú soldið magnað en það var sko ekki allt. Eftir
æfinguna kom bara sjónvarpið og tók viðtal við kallinn. Ég vissi
ekki hvaðan á mig stóð veðrið og ég hef örugglega verið alveg eins
og kúkur og allir í Fredrikstad hafa örugglega hlegið sig máttlausa
yfir viðtalinu. En ég er þó búinn með fyrsta sjónvarpsviðtalið mitt
og vonandi verða þau ekkert mikið fleiri  En þetta var bara svona
til að öppdeita ykkur dyggu lesendurnir mínir. Leiter
Birkir
»
02.01.2007 21:09:37 / bippo
Já sælt veri fólkið
Þá held ég bara að það sé komið að ferðasögu frá ferð minni til
hinnar undurfögru og stórbrotnu borgar, Barcelona. Það er búin að
vera gríðarlega mikil pressa á mér að fara að drullast til að
blogga og ég hef ákveðið að bregðast við þeirri pressu. Here
goes...
Þann 19.desember hélt ég uppá Flugstöð Leifs Eiríkssonar klukkan
u.þ.b. 6 um morgun til að taka flugmaskínu til höfuðborgar vændis,
eiturlyfja og túlípana sem kölluð er í daglegu tali Amsterdam. Þar
stoppaði ég stutt og rúmlega 3 tímum seinna var ég kominn uppí
flugmaskínu á leið til minnar Mekka, Barcelona. Við komuna þangað
fór ég bara beinustu leið uppá hótel að hvíla mig enda dauðþreyttur
eftir að hafa vaknað eldsnemma. Reyndar kíkti ég svo um kvöldið á
írskan pöbb í nágrenninu til að horfa á Liverpool-Arsenal sem átti
að vera þarna um kvöldið en var svo frestað vegna þoku. Ég komst
reyndar ekki að því fyrr en ég var búinn að láta barþjóninn leita
að leiknum í sjónvarpinu í svona korter. Hann var mjög sáttur þegar
ég sagði honum að það væri svo enginn leikur. En til að friða hann
keypti ég bara nokkra bjóra á barnum og horfði á einhvern spænskan
leik í staðinn  Síðan skellti ég mér bara í háttinn. Daginn eftir
vaknaði ég og tók smá túristapakka á þetta og fór að skoða hina
frægu dómkirkju Barcelona sem var bara 1 mínútu frá hótelinu mínu.
Síðan rölti ég bara aðeins á Römbluna áður en ég fór bara uppá
hótel að bíða eftir Baldri sem var væntanlegur til borgarinnar
síðdegis. Honum seinkaði reyndar aðeins og kom um 8 leytið og við
kíktum út á pöbb þar sem við festum kaup á einum eða tveimur
öllurum. Stóri dagurinn rann svo upp daginn eftir þegar hetjur
okkar allra í stórliði FC Barcelona sem öttu kappi við Fernando
Torres og félaga á hinum stórfenglega leikvangi Camp Nou. Ég og
Ballz kíktum að sjálfsögðu fyrst í skoðunarferð um völlinn áður en
ég verslaði fyrir tugi þúsunda í Barcelona búðinni. Missti mig
aðeins  Ég viðurkenni það fúslega enda er það ekekrt til að
skammast sín fyrir. Skemmst er frá því að segja að við skemmtum
okkur konunglega á leiknum þó svo að hann hefði ekki farið eins og
best var á kosið. 1-1 jafntefli þar sem kóngurinn, Ronaldinho,
skoraði beint úr aukaspyrnu. Eiði Smára tókst að klúðra dauðafæri í
stöðunni 1-0 þar sem hann hefði getað gert út um leikinn. En hann
ákvað að halda spennunni í leiknum og hitta ekki boltann. Síðan
komum við Ballz bara heim á klakann á Þorláksmessu. Frábær ferð í
alla staði fyrir utan 7 klst seinkunina á fluginu þegar ég var að
fara heim útaf veðurandskotanum hérna heima. En svona var þessi
ferð.
Jólin voru síðan alveg frábær og mér tókst 3 daga í röð að éta
þangað til að mér leið bara bölvanlega og svo alltaf þegar ég var
rétt búinn að jafna mig þá úðaði ég í mig ís og við tók annar
klukkutími af vítiskvölum. Maður lærir aldrei af reynslunni þegar
kemur að jólunum og góðum mat. Þannig er það bara. Milli jóla og
nýárs skellti ég mér síðan til Bolungarvík City og var þar gestur
hjá Stebbu og fjölskyldu í góðu yfirlæti fram á gamlársdag. Í
Bolungarvík fékk ég m.a. mjög góðann hammara, borðaði svið, keyrði
risastórann jeppa og keyrði nokkrum sinnum hina margfrægu og
alræmdu Óshlíð með geðsjúkum ökumanni sem ber nafnið Stefanía. Hún
vill gjarnan vera að tala í símann og borða á meðan hún keyrir og
þ.a.l. kom það fyrir að maður varð ögn smeykur í Óshlíðinni. En
þetta var allt í lagi því hún keyrði bara með löppunum ef hún hafði
engar hendur eftir til að keyra  Á gamlárs var svo kíkt á Sálina
á Breiðvangi og skemmti ég mér konunglega þar að vanda. Sálin
klikakr sko ekki. Það er nokkuð víst. Svona voru jól og áramót hjá
Birki. Leiter
p.s. ég fer alveg að setja inn myndir. það fer bara að detta
inn
Birkir
»
18.12.2006 21:39:54 / bippo
Jæja elsku rjómabollurnar mínar
Á morgun held ég uppí flugvél sem mun fljúga með mig til
heimaborgar hassins og vændiskvennanna, Amsterdam. Þar mun ég
dvelja í nokkra klukkutíma þangað til ég mun stíga uppí aðra
flugmaskínu sem mun taka mig til hinnar yndislegu borgar sem ég kýs
að kalla Mekka, Barcelona. Ég mun vera þar einn og yfirgefinn
í rúman sólarhring á meðan ég bíð eftir honum Baldri Þórólfssyni
sem mun dvelja þarna með mér. Aðalatriði og ástæða
ferðarinnar, Barcelona-Atletico de Madrid, er svo á
fimmtudagskvöldið klukkan 2200. Deginum verður sennilega eytt
á Nývangi þar sem verður farið í skoðunarferð um kvikindið og
verlsað fyrir upphæðir sem gætu gert venjulegan mann gjaldþrota í
Barcelona megastore. Vááááááá hvað ég hlakka ógeðslega mikið
til. Ég er nálægt því að kasta upp ég er svo spenntur.
Restin af ferðinni verður sennilega eytt á katalónskum pöbb þar sem
drukkinn verður cerveza af áfergju. FÍLA'ÐA!!!!!!! En ekki
örvænta... ég kem aftur á Þorláksmessu og þið getið átt von á því
að sjá kappann í miðbæ Reykjavíkur á Þorláksmessukvöld í góðum
gír. En þangað til... Leiter biddsjes
Birkir
»
08.12.2006 19:18:18 / bippo
Sælaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaar
Jæja, vegna fjölda áskoranna (eiginlega væli hjá Tyrkjanum og
Stebbu... viljiði tissjú?) hef ég ákveðið að henda einni færslu á
litla bloggið mitt. Ástæðan fyrir bloggleysi síðustu daga er
aðallega leti og svo er maður nú í prófum og það gengur nú
eiginlega fyrir. En allavega, here goes
Það er nú ýmislegt sem mér liggur á hjarta og eins og svo oft áður
er ég að verða alveg gjörsamlega snar-, bandvitlaus á þessu
helvítis dómskerfi hérna á þessari eyju. Hvað er
málið!? Maður sem hélt fyrrverandi konunni sinni nauðugri á
heimili sínu, barði hana og nauðgaði henni ítrekað, fær dóm en
labbar sama dag út götu og nauðgar síðan aftur og menn hafa loksins
vit á því að stinga þessu ógeðslega ómenni í gæsluvarðhald. Svo sá
ég líka eitt annað í dag. Það var að dómur yfir einhverjum
ógeðslegum nauðgara var styttur úr 2 árum í 1 og hálft ár í
Hæstarétti. Og vitiði af hverju þeim datt í hug að stytta dóminn?
Já af því að hann var svo ungur nauðgaraógeðið. Vááááááááá
góð ástæða. Maður á bara ekki orð lengur.
Svo langar mig líka aðeins að minnast á stórkostlega frammistöðu AC
Milan á síðustu vikum og mánuðum. Hvur djöfullinn er á seyði.
Fallbarátta í Serie A og 10 stig í riðlakeppninni í CL. Djöfull er
það ógeðslega slappt. Og af hverju í fjandanum er ekki búið að reka
þjálfarann. Þetta er bara ekki boðlegt. En jæja nú er nóg komið af
væli. Að skemmtilegu hlutunum
Prófin klárast á mánudaginn og bekkurinn er búinn að leigja hús í
biskupstungum þar sem við ætlum að grilla og hafa gaman saman. Það
verður sko ekki amalegt því að þessi bekkur er bara tær snilld.
Ekkert nema snillingar. Síðan er maður á leiðinni til Mekka
(Barcelona) þann 19. des þar sem ég mun berja öll goðin mín, að
Danny Mills frátöldum, augum. Þ.e.a.s. allt Barcelona liðið
og Fernando Torres. Já þið gátuð rétt, ég er að fara á
Barcelona-Atletico Madrid á Nývangi þann 20.des og ég mun sitja í
dýrustu sætunum á vellinum takk fyrir og góóóóóðan daginn. En nú er
þetta orðið gott og Tyrkinn og Stebba geta þerrað tárin.
Leiter
Birkir
»
24.11.2006 21:43:02 / bippo
Sælaaaaaaaaar
Nú get ég ekki orða bundist lengur. Ég ætla að vera pólitískur í
þessari færslu og fólk verður bara að þola það. Ef fólk las blaðið
í dag þá hefur það eflaust séð að maður var dæmdur í 3 og hálfs árs
fangelsi fyrir kynferðisafbrot gegn tveimur stelpum og þ.á.m.
fósturdóttur sinni og stóð þetta yfir í a.m.k. 4 ár. 3 og hálfs árs
fangelsi. Hvað er að fólki. Þetta helvítis réttarkerfi hérna á
þessu landi er náttla mesta hneisa sem ég hef nokkurn tíma
upplifað. Svo segir í dómi hæstarréttar að dómurinn sé svona
"hár" vegna þess að brotin hafi verið ítrekuð og alvarleg og að
hann hafii brotið gegn uppeldisreglum og bruðist trausti
barnsins. Já ok er það þess vegna sem hann fær svona
svakalega "háan" dóm. Hefði hann semsagt bara fengið 1 ár
skilorðsbundið ef hann hefði bara gert þetta í 1 ár.
Djöfulsins fokking kjaftæði. Þessi maður hefur eyðilagt líf
tveggja einstaklinga fyrir lífstíð og hann sleppur út eftir svona 2
ár. Að sjálfsögðu á þetta ógeð að fá lífstíðarfangelsi því að svona
brot verða aldrei bætt. Mín skoðun er að þessi ógeðslegu fávitar
sem stunda þetta eigi ekki skilið að fá að lifa sínu lífi það sem
eftir er ævinnar heldur eigi þeir bara að sitja inni þangað til
þeir deyja. Djöfulsins ógeð. Svo sér maður í sama blaði að
einhverjir tveir Litháar fái 7 ára fangelsi fyrir að smygla dópi.
Að sjálfsögðu eiga eiturlyfjasmyglarar líka að fá háa dóma en að
mínu mati eru þau brot ekki einu sinni sambærileg við
kynferðisafbrot gegn börnum. Ég lýsi hér með yfir vantrausti á
Ríkisstjórnina ef hún fer ekki að drullast til að gera eitthvað í
þessu og hætti að hugsa um eitthvað kjaftæði eins og að breyta
græna kallinum í græna kellingu til að gera einhverja feminista
ánægða. Hverjum er ekki sama þó að græni kallinn sé kona eða kall.
Í alvöru. Ríkisstjórn, drulliði ykkur að gera eitthvað af viti. Og
hana nú
Birkir
»
17.11.2006 21:28:51 / bippo
Jæja
Í gær kíkti Akademían úr Keflavík í
heimsókn á hið yndislega vatn Laugar. Það mættu held ég 25
kvikindi til að etja kappi við hin gríðarlegu hraustmenni sem eru á
Laugarvatni í hinum ýmsu íþróttum sem voru fótbolti, blak,
blindrabolti og boðhlaup. Ég var að sjálfsögðu í kallaliðinu
í fótbolta. Við gerðum jafntefli 1-1 og það er skemmst frá
því að segja að ég gat ekki neitt, enda er innanhússfótbolti ekki
fótbolti eins og allir vita. Laugarvatn jarðaði Akademíuna að
sjálfsögðu í samanlagðri stigkeppni og fengum við því glæsilegan
farandbikar sem má alveg eins kalla eignarbikar því að þessi bikar
fer aldrei til Akademíunnar. Eftir íþróttamótið byrjuðu menn
svo að hella í sig og boðið var uppá pizzu í matsal ÍKHÍ.
Síðan voru skemmtiatriði í boði hvers bekkjar og þar var það
klárlega 1.bekkur Laugarvatns sem stal senunni með snilldar eitís
dansatriði þar sem rjómi var m.a. í stóru hlutverki. Síðan
þótti mér einnig skondið þegar Stebba var tekin uppá svið í Djúpu
Laugina. Mér þótti sérlega skemmtilegt hvað henni fannst
þetta ekkert skemmtilegt. hahaha
Núna er maður svo bara kominn í gott helgarfrí
og það verður sko ekkert skrall á manni þessa helgina. Hef
ákveðið að taka því bara rólega því að það er búið að vera ansi góð
törn á Vatninu síðustu vikur og mánuði bæði í lærdómi og
drykkju. Þannig að maður tekur hvíldinni fagnandi. Ekki
einu sinni æfing. En nú er þetta komið gott í bili.
Sææææææææælaaaaaaar
Birkir
»
10.11.2006 22:45:38 / bippo
Já góða kvöldið
Héðan frá Laugarvatni er barasta allt gott að
frétta. Reyndar er nánast búið að vera ófært héðan fyrir mig
síðustu 3-4 daga vegna snjós og hálku því ég er ekki á nógu góðum
dekkjum fyrir svoleiðis rugl. En maður tjillar þá bara á
Vatninu í staðinn. Það er sko alls ekki verra þegar maður er
í góðra vina hópi  Annars er mest lítið búið að vera að gerast
nema eintóm verkefni. Svo fékk ég einkunnina úr helvítis
sálfræðiprófinu (sálfræði er verkfæri djöfulsins eins og flestir
vita) og ég rústaði því náttla eins og vanalega... fékk 5. Ég
var ekkert lítið sáttur því að þetta var einhver leiðinlegasti og
VERST kenndi áfangi sem ég hef nokkurn tíman verið í. Og hana
nú!!!!!!!! En ég er búinn með þetta og þarf ekki að pæla í
því meira. Ég samhryggist þeim innilega sem féllu á þessu
helvíti og þurfa að taka endurtökupróf í janúar. Hugur minn
er með ykkur kútarnir mínir.
Á morgun, laugardaginn 11.nóvember á ég svo
ammæli og ætla ég í tilefni af því að bjóða til örlítillar veislu á
Vatni Laugar og er hver sem er velkominn. Þannig að ef þið
eruð í bænum og hugsið "rosalega langar mig í bíltúr í ógeðslegur
veðri og hálkuviðbjóð" þá endilega kíkið á Vatnið og djammið með
okkur Laugvetningum. En jæja, nú er þetta komið ágætt.
Ble djingz
Birkir
»
02.11.2006 22:40:22 / bippo
Já góða kvöldið
Þá er maður bara kominn heim frá Gúllaslandi eftir svona líka
þrælvelheppnaða för. Ég flaug út til Köben á fimmtudaginn
síðastliðinn og gisti á hóteli nánast á Istegade þannig að ég ákvað
bara að hanga inni á hóteli allt kvöldið með kaldan Kalla, snakk og
tölvuna. Ekki amaleg kvöldstund þar. Eldsnemma
morguninn eftir skellti ég mér á Hovedbaaaaaaanegåååååååården og
lest tekin á Kastrup, aðalflugvöll þeirra Dana. Þaðan lá
leiðin til hinnar geysifallegu borgar Búdapest. Ég lenti í
þvílíkt góðu veðri miðað við árstíma, sól og 20 stiga hiti. Algjör
snilld. Á flugvellinum beið svo eftir mér bílstjóri sem
keyrði mig svo til Debrecen, þar sem Sibbó á heima. Þó að við
bílstjórinn töluðum ekki sama tungumálið þá gátum við samt talað
saman á einu af alþjóðlegu tungumálunum, Led Zeppelin og Deep
Purple. Ég tengdi tölvuna í græjurnar hjá honum og við
blöstuðum Zeppelin og Deep Purple og sungum hástöfum með.
Mjög skemmtilegur kall þar á ferð. Þegar komið var til Debó
þá var eiginlega bara farið beint í djammgallann og náð í bjór í
ísskápin því að Ungverjaland-Ísland var að byrja í handbolta.
Ég og Sibbó beiluðum í hálfleik og fórum á geðveikan Sushi
stað. Ég hélt að ég myndi aldrei nokkurn tímann fást til að
smakka sushi en það er bara djöfulli gott og ég sé sko ekki eftir
því að hafa smakkað. Síðan var farið í eitthað bekkjarpartý
með bekknum hans Sibba og þar sem ég var örþreyttur og örlítið,
bara örlítið, ölvaður fór ég snemma heim að sofa.
Á laugardeginum skelltum við okkur síðan til
Búdapest með lest. Veðrið í Búda var alveg jafn djöfulli gott
og þess vegna var alveg geðveikt að skoða þessa fallegu borg.
Við skoðuðum alla þessa kastala og frægu byggingar og skemmtum
okkur bara helvíti vel. Um kvöldið var síðan kíkt á einhvern
bar niðrí bæ þar sem var verið að sýna spænska boltann. Þar
sátum við og sötruðum öl og fórum svo bara rólegir uppá hótel að
sofa enda var Doktorinn vel þunnur eftir föstudagsdjammið.
Þess má geta að hann kom örlítið seinna heim en ég á
föstudagskvöldið eða rúmum 8 klst síðar. Daginn eftir var
síðan haldið aftur til Debó og restin af ferðinni notuð í
tjill. Þess má til gamans geta að ég smakkaði straujaða
nautasteik en það er eitthvað sem ég hugsa að ekki allir hafi
smakkað.
Nú sit ég bara hérna heima og horfi á
sjónvarpið. Á laugarvatni er byrjað hálfgert hrekkjustríð
eftir að hin alræmda Station mafía vakti einn meðlim Anti-Station
eldsnemma í morgun með fullum bala af klökum og haframjöli.
Anti-Station hefur nú þegar lýst yfir stríði og hyggst hefna fyrir
formann sinn, hnakkann frá Hellu, hann Árna. Þannig að ég
segi bara JIHAD og góða nótt.
Birkir
»
26.10.2006 12:57:37 / bippo
Jæja...
Hér sit ég bara á flugvelli Leifs Eríkssonar og
bíð eftir flugi héðan og til Kóngsins Köben. Þar mun ég éta
smörrebröd (borið fram Smöööööööööebrrrrööööd) og drekka ískaldan
Carlsberg (borið fram Kaaaaarrrrrrrlsbeeeeeerrrrrg). Þar
gisti ég í eina nótt áður en ég legg eldsnemma af stað til Búdapest
í Ungverjalandi, oftast kallað Gúllasland. Þaðan fer ég svo
til Debrecen þar sem hann Doktor Sibbus minn mun bíða eftir mér með
gúllassúpu og með því. En ekki örvænta því ég sný aftur á
þriðjudaginn næstkomandi þannig að þið fáið að njóta félagsskapar
míns þá. Leiter
Birkir
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|